Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 25. mars 2020 22:00
Ívan Guðjón Baldursson
Deyverson næstum sektaður fyrir að fara út í búð
Mynd: Getty Images
Deyverson, brasilískur framherji Palmeiras sem er að láni hjá Getafe þessa stundina, var næstum sektaður um 90 þúsund krónur fyrir að fara út með kærustunni í gær.

Deyverson, sem á leiki að baki fyrir Levante og Alaves, var á leið í búðina ásamt kærustu sinni þegar lögregla stöðvaði parið og ætlaði að sekta um 600 evrur.

„Við kærastan fórum saman út í búð. Lögreglan stöðvaði okkur og sektaði næstum um 600 evrur. Við megum ekki fara út saman, við verðum að fara eitt í einu," sagði Deyverson við Globoesporte.

„Þetta er í annað sinn sem lögreglan hefur afskipti af mér í vikunni því ég má víst ekki hlaupa úti á götum borgarinnar. Þetta er mjög flókið ástand fyrir mig því ég get ekki setið kyrr. Ég er ofvirkur."


Athugasemdir
banner