Þrír á förum frá Man City - Dalot orðaður við Real Madrid - Framherji West Ham til Milan?
   sun 25. apríl 2021 17:05
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Byrjunarlið A. Villa og WBA: Barkley kemur inn
Aston Villa og WBA mætast í nágrannaslag klukkan 18:00. Leikurinn fer fram á Villa Park í Birmingham og er í beinni útsendingu á Síminn Sport.

Aston Villa hefur tapað síðustu tveimur leikjum sínum og WBA tapaði síðasta leik sínum eftir að hafa unnið tvo þar á undan. WBA þarf á sigri að halda til að halda í einhverja von um sæti í deildinni á næsta ári. Aston Villa siglir lygnan sjó um miðja deild en getur komist upp fyrir Leeds í 9. sætið með sigri.

Dean Smith, stjóri Villa, gerir þrjár breytingar á sínu liði frá tapinu gegn Man City. Ahmed Elmohamady kemur inn fyrir Matty Cash sem er í leikbanni. Þeir Anwar El Ghazi og Ross Barkley koma einnig inn í liðið.

Sam Allardyce, stjóri WBA, gerir tvær breytingar. Semi Ajayi og Conor Gallagher koma inn í liðið.

Aston Villa: Martinez, Elmohamady, Konsa, Mings, Targett, Luiz, McGinn, Traore, Barkley, El Ghazi, Watkins.

WBA: Johnstone, Furlong, Ajayi, Bartley, Townsend, Yokuslu, Gallagher, Maitland-Niles, Robinson, Diagne, Pereira
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 16 11 3 2 30 10 +20 36
2 Man City 16 11 1 4 38 16 +22 34
3 Aston Villa 16 10 3 3 25 17 +8 33
4 Chelsea 16 8 4 4 27 15 +12 28
5 Crystal Palace 16 7 5 4 20 15 +5 26
6 Liverpool 16 8 2 6 26 24 +2 26
7 Sunderland 16 7 5 4 19 17 +2 26
8 Man Utd 15 7 4 4 26 22 +4 25
9 Everton 16 7 3 6 18 19 -1 24
10 Brighton 16 6 5 5 25 23 +2 23
11 Tottenham 16 6 4 6 25 21 +4 22
12 Newcastle 16 6 4 6 21 20 +1 22
13 Fulham 16 6 2 8 23 26 -3 20
14 Bournemouth 15 5 5 5 21 24 -3 20
15 Brentford 16 6 2 8 22 25 -3 20
16 Nott. Forest 16 5 3 8 17 25 -8 18
17 Leeds 16 4 4 8 20 30 -10 16
18 West Ham 16 3 4 9 19 32 -13 13
19 Burnley 16 3 1 12 18 33 -15 10
20 Wolves 16 0 2 14 9 35 -26 2
Athugasemdir
banner