Leeds 0 - 0 Manchester Utd
Það fór fram einn leiðinlegur fótboltaleikur á Elland Road í dag. Markalaust varð þegar Manchester United heimsótti Leeds. Það var markalaust þrátt fyrir að Ole Gunnar Solskjær, stjóri Man Utd, hefði sagt að leikurinn myndi ekki enda 0-0 í viðtali fyrir leik.
Sjá einnig:
Solskjær: Leikurinn mun ekki fara 0-0
Islan Meslier í marki Leeds átti góðan dag í mark Leeds og varði vel frá gestunum en lítið var þó um dauðafæri í leiknum.
Umtalaðasta atvik leiksins er sennilega þegar Luke Shaw fékk boltann í höndina inn á vítateig Man Utd í fyrri háfleik en dómari leiksins og VAR ákvað að dæma ekki víti á Shaw.
Manchester United er áfram í 2. sæti deildarinnar en stigið kemur Leeds upp fyrir Arsenal og í 9. sæti deildarinnar.
Athugasemdir