Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 25. apríl 2021 23:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Carragher gat ekki annað en hlegið
Jamie Carragher.
Jamie Carragher.
Mynd: Getty Images
Jamie Carragher var ekki skemmt á meðan hann lýsti leik Leeds og Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Leikurinn á Elland Road í dag var ekki sá skemmtilegasti. Markalaust varð þegar Manchester United heimsótti Leeds. Það var markalaust þrátt fyrir að Ole Gunnar Solskjær, stjóri Man Utd, hefði sagt að leikurinn myndi ekki enda 0-0 í viðtali fyrir leik.

Ilan Meslier í marki Leeds átti góðan dag í mark Leeds og varði vel frá gestunum en lítið var þó um dauðafæri í leiknum.

Carragher, fyrrum leikmaður Liverpool, lýsti leiknum á Sky Sports og á meðan leiknum stóð sagði hann: „Þessi leikur hefur verið hræðilegur. Jesús minn almáttugur."

Hann gat þá ekki annað en hlegið að sendingu Luke Ayling, varnarmanns Leeds, í seinni hálfleik. Gæðin voru ekki alveg þau mestu og skemmtunin ekki mikil. Það var alla vega búist við meiri skemmtun fyrir leik.


Athugasemdir
banner