Fotbolti.net
25.04.21 - 18:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Þýskaland: Gladbach í stuði á heimavelli

Þýskaland: Gladbach í stuði á heimavelli
Canon

Mynd: Getty Images

<b>Borussia M. 5 - 0 Arminia Bielefeld</b>
1-0 Breel Embolo ('6 )
2-0 Marcus Thuram ('15 )
3-0 Ramy Bensebaini ('18 , víti)
4-0 Breel Embolo ('69 )
5-0 Alassane Plea ('84 )
Borussia Mönchengladbach fór illa með Arminia Bielefeld í síðari leik dagsins í þýsku úrvalsdeildinni í dag.

Breel Embolo var í miklu stuði og hann kom Gladbach á bragðið í leiknum. Marcus Thuram gerði annað mark Gladbach á 15. mínútu leiksins og Ramy Bensebaini gerði það þriðja af vítapunktinum á 18. mínútu.

Leikurinn var svo gott sem búinn eftir það. Gladbach bætti við tveimur mörkum til viðbótar í seinni hálfleiknum og lokatölur í þessum leik 5-0 fyrir Gladbach.

Sanngjarn sigur Gladbach staðreynd og er liðið í sjöunda sæti deildarnnar með 46 stig. Bielefeld er einu stigi frá fallsvæðinu.

Önnur úrslit í dag:
Þýskaland: Leizpig nýtti sér liðsmuninn eftir ljótt brot
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.