Sveinn Þór: Vinnusemin skein í gegn
Auglýsing

Sveinn Þór var ánægður með þrautseigju KA manna.

Mynd: KA

<i>„Frábær þrjú stig. Flottur leikur hjá okkur í heildina, ef við horfum á vinnusemina,''</i> sagði Sveinn Þór Steingrímsson, aðstoðarþjálfari KA eftir 2-0 heimasigur á ÍBV í 6. umferð Pepsi Max deildar karla.
Hann bætti við: „Aðstæðurnar gáfu okkur ekki mikið færi á að spila okkar leik, en við vorum flottir. Sýndum mikla þrautseigju og vinnusemin skein í gegn.''
KA liðið lenti í miklum meiðslavandræðum í leik liðsins gegn Stjörnumönnum í síðustu umferð og því varð að gera breytingar í dag, en Sveinn sagðist treysta hópnum fullkomlega: „Þegar leikmaður finnur fyrir trausti, þá veistu að þú færð flotta frammistöðu frá honum.''
Aðspurður um bikarleikinn og mögulegar byrjunarliðsbreytingar gegn Víking R. sagði Sveinn: „Það á bara eftir að koma í ljós. Auðvitað er stutt á milli leikja, það getur vel verið að það verði sama byrjunarlið.''
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.