Fotbolti.net
25.05.21 - 22:27
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Matti svekktur: Eins og það hafi orðið eitthvað tabú á síðustu árum að berjast

Auglýsing
Matti svekktur: Eins og það hafi orðið eitthvað tabú á síðustu árum að berjast
Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Matthías Vilhjálmsson, fyrirliði FH, var til viðtals eftir tap gegn Leikni í kvöld. Hann ræddi við Magnús Þór Jónsson, fréttaritara Fótbolta.net.

„Mikil vonbrigði, við vorum með þetta í hendi í fyrri hálfleik en þetta sýnir bara að með mikill ástríðu vinnuru fótboltaleiki og það sýndu Leiknismenn í dag."
Matti kom FH verðskuldað yfir á 21. mínútu, FH hafði byrjað leikinn mun betur. En Leiknir kom strax til baka mínútu seinna og jafnaði leikinn.

„Leikurinn er 90+ mínútur, heilt yfir var þetta ekki góð frammistaða hjá FH-liðinu og þetta eru vonbrigði."

„Mér fannst við vera ansi langt frá mönnum í seinni boltum og fannst þeir vera fyrstir í margt. Við áttum einhver hálffæri og svoleiðis en heilt yfir ekki nógu gott."


Leiknismenn unnu baráttuna í kvöld.

„Það er eins og það hafi orðið eitthvað tabú á síðustu árum að berjast. Það sést á því sérstaklega þegar það er smá vindur og boltinn skoppar að þú kemst ansi langt á baráttunni. Það þurfum við að laga sem fyrst," sagði Matthías.

Viðtalið í heild má sjá í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.