Fotbolti.net
25.05.22 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Jói útherji

Modric um framtíðina: Ætla ekki að gera eins og Mbappe

Luka Modric

Luka Modric

Canon

Mynd: EPA

Króatíski miðjumaðurinn Luka Modric brá á leik í viðtali við El Partidazo de COPE en hann ræddi þar samning sinn við Real Madrid.
Modric er 36 ára gamall og kominn á seinni ár ferilsins en það virðist ekki sjást mikið á honum miðað við hvernig hann hefur spilað á þessu tímabili.

Hann er enn lykilmaður á miðju liðsins og hjálpaði liðinu að vinna spænsku deildina.

Real Madrid er þá komið í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu en samningur hans við Madrídinga rennur út í sumar og hafa fjölmiðlar mikið velt því fyrir sér hvað verður um hann.

Modric segist ekki vera að flýta sér að taka ákvörðun en að hann ætli þó ekki að gera eins og franski sóknarmaðurinn Kylian Mbappe sem tók U-beygju á síðustu sekúndu og ákvað að framlengja við Paris Saint-Germain í stað þess að ganga í raðir Real Madrid.

„Ég er ekki enn búinn að framlengja samning við Real Madrid en ég mun ekki gera eins og Mbappe," sagði Modric og hló áður en hann bætti við: „Svo vona ég auðvitað að félagið geri ekki slíkt hið sama við mig."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.