Fotbolti.net
25.05.26 - 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Sex lið sem Pep náði ekki að sigra sem stjóri City

Maxwel Cornet skoraði í öllum þremur leikjum Lyon gegn City. Enginn af þeim tapaðist.

Maxwel Cornet skoraði í öllum þremur leikjum Lyon gegn City. Enginn af þeim tapaðist.

Canon

Mynd: EPA

Sem stjóri Manchester City mætti Pep Guardiola 93 liðum. Einungis sex þeirra tókst að koma í veg fyrir tap gegn Guardiola.
Það eru Al-Hilal, Bayer Leverkusen, Bodö/Glimt, Celtic, Lyon og Wigan.

Al-Hilal sigraði City á HM félagsliða síðasta sumar í 16-liða úrslitum keppninnar, Leverkusen og Bodö/Glimt sigruðu City i Meistaradeildinni í vetur.

Celtic og City gerðu jafntefli í báðum leikjum liðanna í Meistaradeildinni 2016, Lyon vann City tvívegis í Meistaradeildinni í þremur leikjum á árunum 2018-2020 og Wigan sigraði City í enska bikarnum 2018.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.