Fotbolti.net
14.06.26 - 16:45
Brynjar Ingi Erluson

2. deild: Skoraði þrennu í dramatískum sigri

Hvíti riddarinn vann magnaðan sigur á KFA

Hvíti riddarinn vann magnaðan sigur á KFA

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Hvíti riddarinn 4 - 3 KFA
1-0 Patrekur Orri Guðjónsson ('18 )
2-0 Patrekur Orri Guðjónsson ('26 )
2-1 Þór Sigurjónsson ('34 )
3-1 Sindri Sigurjónsson ('35 )
3-2 Þór Sigurjónsson ('45 )
3-3 Jawed Abd El Resak Boumeddane ('49, vítaspyrna )
4-3 Patrekur Orri Guðjónsson ('90, vítaspyrna )
Rautt spjald: Ástþór Ingi Runólfsson ('87, Hvíti riddarinn)
Patrekur Orri Guðjónsson átti stórkostlega frammistöðu er Hvíti riddarinn vann dramatískan 4-3 sigur á KFA í 2. deild á Malbikstöðinni að Varmá í dag.

Framherjinn kom Hvíta riddaranum í tveggja marka forystu á átta mínútna kafla í fyrri hálfleik. Hann skoraði fyrsta markið á 18. mínútu og annað á 26. mínútu.

Þór Sigurjónsson skoraði fyrir KFA á 34. mínútu en heimamenn svöruðu og komust aftur í tveggja marka forystu mínútu síðar er Sindri Sigurjónsson skoraði.

Þór gerði annað mark sitt undir lok fyrri hálfleiks og jafnaði Jawed Abd El Resak Boumeddane metin með marki úr vítaspyrnu í upphafi síðari hálfleiks.

Ástþór Ingi Runólfsson, leikmaður Hvíta riddarans, fékk að líta gula spjaldið á 81. mínútu og aðeins sex mínútum síðar var hann rekinn af velli.

Það kom ekki að sök því stuttu síðar fengu heimamenn vítaspyrnu og var það Patrekur sem fór á punktinn og fullkomnaði þrennu sína og tryggði um leið sigurinn.

Stór þrjú stig hjá Hvíta sem er í 8. sæti deildarinnar með 10 stig en KFA í sætinu fyrir neðan með 9 stig.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Haukar14+1729
2Selfoss14+626
3Kári14+1524
4Fjölnir14+521
5Víkingur Ó.14-421
6Kormákur/Hvöt14+1120
7Dalvík/Reynir14020
8KFA14+617
9Magni14-1715
10Þróttur V.14-713
11Hvíti riddarinn14-813
12KFG14-2413
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.