Fotbolti.net
14.06.26 - 19:33
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Bjarki Björn: Það er risastórt að hafa hann

Auglýsing
Bjarki Björn: Það er risastórt að hafa hann
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍBV hefur unnið tvö frábæra sigra í röð en liðið stökk upp fyrir Þór úr fallsæti með sigri á Akureyri í dag. Bjarki Björn Gunnarsson skoraði tvö og lagði upp eitt.
„Eins og í síðasta leik þá gekk einhvern veginn allt upp. Tvö fín mörk og svo vel klárað hjá Sesari í síðasta markinu," sagði Bjarki Björn en hann var með þrjár stoðsendingar í 6-1 sigri á Keflavík í síðustu umferð.

„Það er kannski eitthvað að smella en svo erum við að fá sterka menn til baka. Svo erum við að finna okkar lið, bara ein breyting frá síðasta leik. Bara keyra á þetta og halda þessu áfram," sagði Bjarki Björn.

Það hefur verið þónokkuð um meiðsli í hópnum. Bjarki er ánægður að sjá m.a. fyrirliðann Alex Frey Hilmarsson kominn á fulla ferð.

„Við verðum að hafa Alex Frey, hann stýrir þessu á miðjunni hjá okkur og er ótrúlega mikilvægur fyrir liðið. Hann heldur vel í boltann og setur ró á liðið. Það er risastórt að hafa hann."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.