Fotbolti.net
14.06.26 - 20:40
Ívan Guðjón Baldursson

Newcastle að ganga frá kaupum á spænskum landsliðsmanni

Newcastle að ganga frá kaupum á spænskum landsliðsmanni
Canon

Mynd: EPA

Newcastle United er að ganga frá kaupum á kantmanninum Victor Munoz fyrir 40 milljónir evra.
Munoz er vinstri kantmaður að upplagi sem á 23 ára afmæli í júlí. Hann er hugsaður sem arftaki fyrir Anthony Gordon sem var keyptur til Barcelona fyrr í sumar.

Munoz kom með beinum hætti að 12 mörkum í 36 leikjum með Osasuna á nýliðnu tímabili, en hann kom meðal annars við hjá Barcelona og Real Madrid sem táningur.

Osasuna fékk Munoz úr röðum Real Madrid en Madrídingar héldu endurkaupsrétti og 50% endursöluákvæði af heildarupphæð næstu félagaskipta leikmannsins. Það þýðir að Real Madrid fær 20 milljónir í kassann fyrir söluna á Munoz.

Munoz lék aldrei fyrir unglingalandslið Spánar en er kominn með eitt mark í tveimur A-landsleikjum þrátt fyrir ungan aldur. Hann var óvænt valinn í landsliðshópinn fyrir heimsmeistaramótið.

Newcastle í viðræðum um kaup á Munoz
TENGT EFNI

Newcastle í viðræðum um kaup á Munoz

Newcastle að ganga frá kaupum á spænskum landsliðsmanni
Canon

Mynd: Barcelona

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.