Fotbolti.net
14.06.26 - 17:33
Ívan Guðjón Baldursson
Jói útherji

Bjóða Gvardiol bættan samning í ljósi mikils áhuga

Bjóða Gvardiol bættan samning í ljósi mikils áhuga
Canon

Mynd: EPA

Króatíski varnarmaðurinn Josko Gvardiol er gríðarlega eftirsóttur og hefur verið sterklega orðaður við félagaskipti til Real Madrid að undanförnu.
Gvardiol er 24 ára gamall og með aðeins tvö ár eftir af samningi sínum við Manchester City, en Spánarmeistarar Barcelona hafa einnig áhuga á honum.

Man City vill halda lykilmanninum sínum og hefur boðið Gvardiol endurbættan samning til að sannfæra hann um að vera áfram í Manchester frekar en að flytja til Spánar.

Gvardiol hefur spilað 122 leiki á þremur árum í Manchester en kom aðeins við sögu í 25 leikjum á nýliðnu tímabili vegna meiðsla.

Stjórnendur City eru sannfærðir um að Gvardiol muni samþykkja bættan samning.

Gvardiol efstur á óskalista Mourinho
TENGT EFNI

Gvardiol efstur á óskalista Mourinho

Bjóða Gvardiol bættan samning í ljósi mikils áhuga
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.