Fotbolti.net
14.06.26 - 18:24
Ívan Guðjón Baldursson

Besta deildin: Þór átti ekki möguleika gegn ÍBV

Besta deildin: Þór átti ekki möguleika gegn ÍBV
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þór 1 - 4 ÍBV
0-1 Bjarki Björn Gunnarsson ('12)
0-2 Bjarki Björn Gunnarsson ('21)
0-3 Sesar Örn Harðarson ('24)
1-3 Ágúst Eðvald Hlynsson ('81)
1-4 Ásbjörn Líndal Arnarsson ('82 , sjálfsmark)
Lestu um leikinn: Þór 1 - 4 ÍBV

Þór og ÍBV áttust við í fyrri leik dagsins af tveimur í Bestu deild karla og gerðu gestirnir frá Vestmannaeyjum út um leikinn á fyrstu 25 mínútunum.

Það var mikið fjör á upphafsmínútunum þar sem bæði lið komust nálægt því að skora áður en Bjarki Björn Gunnarsson náði forystunni eftir góða sendingu upp völlinn frá Vicente Valor.

Bjarki Björn gerði svo vel að tvöfalda forystuna tæpum tíu mínútum síðar eftir sendingu frá Alex Frey Hilmarssyni fyrirliða og skömmu síðar lagði Bjarki þriðja markið upp með góðri stungusendingu fyrir Sesar Örn Harðarson.

Staðan var því orðin 0-3 og hélst þannig allt þar til á lokakaflanum. Eyjamenn komust nær því að bæta við heldur en Þórsarar að minnka muninn, en Ágúst Eðvald Hlynsson skoraði fánamark á 81. mínútu. Það leið aðeins um mínúta þar til ÍBV svaraði með marki svo lokatölur urðu 1-4.

Þetta er dýrmætur sigur í fallbaráttunni. ÍBV er núna með 8 stig eftir 10 umferðir, tveimur stigum meira heldur en Þórsarar sem sitja eftir í fallsæti.
Besta deildin: Þór átti ekki möguleika gegn ÍBV
Canon

Mynd: ÍBV

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.