Liðsfélagi Hákonar fagnar áhuga ensku stórliðanna

Bouaddi (t.v.) í leik með Lille

Mynd: EPA

Bouaddi (t.v.) í leik með Lille

Mynd: EPA
Ayyoub Bouaddi, leikmaður Lille og marokkóska landsliðsins, segist hafa ánægður með að heyra að stór félög hafi áhuga á að fá hann í sumarglugganum.

TENGT EFNI
Arsenal og Liverpool á eftir einum mest spennandi leikmanni HM
Bouaddi heillaði í fyrsta leik sínum á heimsmeistaramótinu í gær.
Hann var einn af bestu mönnum Marokkó þegar liðið náði í stig gegn Brasilíu.
Þessi 18 ára gamli miðjumaður er samningsbundinn Lille í Frakklandi, en Arsenal og Liverpool eru sögð berjast um að fá hann í sumar.
Lille er sagt opið fyrir því að selja hann, en verðmiðinn er talinn vera í kringum 60 milljónir punda.
„Ég er í skýjunum með að heyra að félög hafi áhuga á mér, en ég er aðeins einbeittur að heimsmeistaramótinu í bili og mun gera mitt allra besta fyrir landsliðið,“ sagði Bouaddi í viðtali sem enski blaðamaðurinn David Ornstein birti á Athletic.
Íslenski landsliðsmaðurinn Hákon Arnar Haraldsson er liðsfélagi Bouaddi hjá Lille en þeir eru báðir lykilmenn hjá franska liðinu sem tryggði sér sæti í Meistaradeild Evrópu fyrir næsta tímabil.