Fotbolti.net
14.06.26 - 17:17
Ívan Guðjón Baldursson

Porro búinn að samþykkja fimm ára samning

Porro búinn að samþykkja fimm ára samning
Canon

Mynd: EPA

Bakvörðurinn sókndjarfi Pedro Porro er búinn að samþykkja nýjan samning hjá Tottenham sem gildir næstu fimm árin.
Porro átti tvö ár eftir af gamla samningnum en stórveldi á borð við Manchester City og Real Madrid sýndu honum mikinn áhuga undir lok tímabils.

Tottenham ákvað því að vinda sér strax í viðræður við Porro og gerir hann að einum af launahæstu leikmönnum félagsins.

Nýr samningur Porro gildir næstu fimm árin eða til sumarsins 2031, með möguleika á framlengingu um eitt ár í viðbót.

Porro er 26 ára gamall og partur af spænska landsliðshópnum sem tekur þátt á heimsmeistaramótinu.

Það var aldrei í myndinni hjá Tottenham að selja bakvörðinn sinn sem hefur verið mikilvægur hlekkur í byrjunarliðinu undanfarin ár.

Fær nýjan fjögurra ára samning hjá Tottenham
TENGT EFNI

Fær nýjan fjögurra ára samning hjá Tottenham



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.