Láki: Hún var að drepast úr mígreni
Auglýsing

Þorlákur Árnason

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þorlákur Árnason

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þorlákur Már Árnason, þjálfari Stjörnunnar í Pepsi-deild kvenna, var ánægður með 5-1 sigur á Aftureldingu í kvöld.
,,Þetta var mjög erfiður leikur. Afturelding spilaði mjög beinskeitt og frábært gameplan hjá þeim, þær voru mjög góðar lengst af. Þær komu okkur á óvart, afslappaðar og börðust einnig, vorum í miklum erfiðleikum með að opna þær, en í seinni spiluðum við mjög vel þegar við náðum að opna þær,\" sagði Þorlákur.
,,Það má segja það, þær skora frábært mark og kom smá stress í þetta, en þá kom karakter hjá mínu liði í ljós og gæðin. Gerðum breytingar í hálfleik og leikmennirnir sem komu inn á eru mjög góðar.\"
,,Það skiptir svosem ekki máli hvaðan mörkin koma, en hún var mjög góð í seinni hálfleik, hún var alltaf að drepast úr mígreni þannig hún var alltaf að koma á varamannabekkinn að fá töflur, við gáfum henni svo fleiri töflur eftir að hún skoraði,\" sagði hann ennfremur.
Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér að ofan.