Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   lau 25. júlí 2020 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Salah gefur í skyn að hann gæti yfirgefið Liverpool
Mo Salah er að klára sína þriðju leiktíð sem leikmaður Liverpool og hefur orðið Evrópumeistari og Englandsmeistari með liðinu ásamt því að vera markahæsti leikmaður úrvalsdeildarinnar í tvígang.

Salah gaf í skyn að hann gæti yfirgefið Liverpool þegar hann sagði að enginn vissi hvað myndi gerast í framtíðinni.

Salah hefur skorað nítján mörk á leiktíðinni og alls 94 mörk í einungis 151 leik fyrir félagið.

„Ég vil bara njóta augnabliksins og dagsins. Enginn veit hvað framtíðin ber í skauti sér. Við sjáum til hvað gerist," sagði Salah í viðtali við LA FM Colombia.
Athugasemdir
banner