lau 25. júlí 2020 19:56
Ívan Guðjón Baldursson
Tyrkland: Viðar Örn byrjaði er Yeni féll
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Yeni Malatyaspor 0 - 1 Gaziantep
0-1 Papy Djilobodji ('63)

Viðar Örn Kjartansson spilaði allan leikinn er Yeni Malatyaspor tapaði á heimavelli og féll úr efstu deild í Tyrklandi.

Yeni fékk Gaziantep í heimsókn og skoraði Papy Djilobodji eina mark leiksins á 63. mínútu.

Viðar Örn er lánsmaður hjá Yeni en hann er samningsbundinn FK Rostov til 2022.

Viðar Örn gerði tvö mörk í fimmtán deildarleikjum á lánstíma sínum hjá Yeni sem fékk 32 stig úr 33 leikjum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner