Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mán 25. júlí 2022 19:20
Ívan Guðjón Baldursson
Telles og Williams til sölu - Bailly ætlar að berjast um sæti
Mynd: Getty Images

Sky Sports greinir frá því að Alex Telles og Brandon Williams, vinstri bakverðir Manchester United, séu til sölu.


Telles og Williams eiga báðir tvö ár eftir af samningum sínum en það er ekkert pláss fyrir þá undir stjórn Erik ten Hag. Hollendingurinn er búnin að krækja í Tyrell Malacia og Lisandro Martinez í sumar og þá mun Luke Shaw berjast um byrjunarliðssæti.

Það eru nokkur félög sem hafa áhuga á Eric Bailly en miðvörðurinn er staðráðinn í því að vera áfram í Manchester til að berjast um byrjunarliðssæti. AC Milan og Roma eru meðal áhugasamra félaga.

Að lokum neitar félagið að selja Cristiano Ronaldo sem er á leið til Manchester. Við lendingu mun hann funda með stjórnendum félagsins varðandi framtíð sína.


Athugasemdir
banner
banner