Fotbolti.net
25.07.26 - 13:38
Brynjar Ingi Erluson

Aðeins tveir áfangastaðir koma til greina hjá Diomande

Aðeins tveir áfangastaðir koma til greina hjá Diomande
Canon

Mynd: EPA

Aðeins tveir áfangastaðir koma til greina hjá Yan Diomande, leikmanni RB Leipzig, en hann hefur lokað á félagaskipti í ensku úrvalsdeildina.
Flest stærstu félög heims hafa sýnt Diomande áhuga. Arsenal, Liverpool og Manchester City vilja öll fá hann til Englands en virðast ekki ætla að hafa erindi sem erfiði. Diomande hyggst aðeins velja á milli Paris Saint-Germain og Real Madrid.

Evrópumeistarar PSG hafa átt í viðræðum við Leipzig um kaup á Diomande og fyrir nokkrum vikum var Evrópumeistaraliðið hans fyrsti kostur. Staðan breyttist hins vegar þegar Real Madrid blandaði sér í baráttuna og nú er leikmaðurinn sagður tvístígandi.

Madrídingar lögðu fram 100 milljóna evra tilboð á dögunum en Leipzig hafnaði því. Félögin halda þó áfram viðræðum og Real Madrid er sagt reiðubúið að gera aðra atlögu.

Arsenal og Manchester City höfðu nýverið samband við föruneyti Diomande til að kanna stöðuna. Eins og mál standa eru dyrnar aðeins opnar fyrir PSG og Real Madrid.

Leipzig hefur ítrekað að félagið vilji halda Diomande í að minnsta kosti eitt ár til viðbótar. Þýskir miðlar telja þó að annað hljóð komi í strokkinn berist tilboð í kringum 130 milljónir evra.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.