Fotbolti.net
25.08.20 - 20:06
Hafliði Breiðfjörð

Róbert Aron: Lagði hann með vinstri upp í skeytin

Auglýsing
Helgi Sigurðsson þjálfari ÍBV sagði Róberti Aroni að fara framar í hornspyrnu og úr því skoraði hann svo sigurmark ÍBV.

Helgi Sigurðsson þjálfari ÍBV sagði Róberti Aroni að fara framar í hornspyrnu og úr því skoraði hann svo sigurmark ÍBV.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
<i>„Þetta var ströggl, 0-1 í hálfleik en mér fannst við miklu betri í seinni,"</i> sagði Róbert Aron Eysteinsson sem tryggði ÍBV sigurinn á Fram í Mjólkurbikarnum í kvöld en leiknum lauk með 2 - 1 sigri ÍBV.
„Við erum með helling af gæðum í liðinu og getum unnið hvaða leik og hvaða lið sem er."

Róbert Aron kom inná á 82. mínútu í stöðunni 1 - 1, ætlaði hann að breyta leiknum?

„Já, ég ætlaði mér það svo sannarlega. Það var helvíti gaman að klára þetta svona," sagði Róbert.

Hann skoraði sigurmarkið á 91. mínútu í kjölfar hornspyrnu en hann hafði fengið skilaboð frá Helga Sigurðssyni þjálfara að fara framar.

„Hann sagði mér að fara framar í hornspyrnunni. Boltinn dettur svo og ég lagði hann með vinstri upp í skeytin. Um leið og ég hitti hann vissi ég að hann væri að fara inn. Þetta var bara geggjað."

Nánar er rætt við hann í sjónvarpinu að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.