Fotbolti.net
25.08.26 - 11:10
Kári Snorrason

Segir ummæli Brazell óboðleg - „Hvað gengur manninum til?“

Sagðist ekki vera aðalþjálfari liðsins.

Sagðist ekki vera aðalþjálfari liðsins.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Chris Brazell, bráðabirgðaþjálfari Vals, átti áhugaverð ummæli eftir 2-0 tap liðsins gegn Víkingi á sunnudag.

Aðspurður um hvort Valsmenn ættu að hafa áhyggjur af stöðunni þar sem liðið væri í 8. sæti deildarinnar sagðist Brazell ekki getað svarað því þar sem hann væri í raun ekki aðalþjálfari liðsins.

Brazell var ráðinn sem bráðabirgðaþjálfari liðsins eftir að Hermann Hreiðarsson var látinn taka poka sinn í lok júní. Þá var tilkynnt að Halldór Árnason tæki við liðinu eftir tímabil en Brazell, sem var aðstoðarmaður Hermanns, myndi klára tímabilið sem aðalþjálfari liðsins.
Chris Brazell: Tæknilega séð er ég ekki aðalþjálfari
TENGT EFNI

Chris Brazell: Tæknilega séð er ég ekki aðalþjálfari

„Hvað gengur manninum til, hvað er hann að segja? Ég er ekki þjálfari þessa liðs, ég er umsjónarmaður. Er hægt að firra sig meiri ábyrgð? Það vita allir að hann er búinn að þjálfa þetta lið frá því að þetta teymi með Hemma var búið til. Hemmi átti að sjá um mannlegu samskiptin, taka ákvarðanir og vera andlitið. Brazell átti að vera frá keilu til keilu þjálfarinn,“ sagði Tómas Þór Þórðarson í Innkastinu.

Frá því að Hermann var rekinn og Brazell tók við Val sem bráðabirgðaþjálfari hefur Valur einungis unnið einn leik.

„Þú getur ekki mætt í 20. umferð þegar þú ert búinn að tapa enn einum leiknum og sagt ekki vera þjálfari. Þetta er ekki boðlegt. Hann er að þjálfa Val - ekki eitthvað lið í 2. deild,“ sagði Tómas og hélt áfram.

„Þetta lítur illa út fyrir félagið þegar þjálfarinn segist ekki vera þjálfari. Hann er á launum við þetta. Mennirnir sem borga honum fyrsta hvers mánaðar líta út eins og kjánar þegar hann segir þetta. Hvað eiga leikmenn að hugsa á æfingu daginn eftir?,“ sagði Tómas Þór jafnframt.
Var aðstoðarmaður Hermanns.

Var aðstoðarmaður Hermanns.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Halldór Árnason tekur við liðinu eftir tímabil.

Halldór Árnason tekur við liðinu eftir tímabil.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Innkastið - Góð skyndiákvörðun og eitrað andrúmsloft

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.