Fotbolti.net
25.09.21 - 15:27
Brynjar Ingi Erluson

Martinez stuðaði Fernandes - „Láttu Ronaldo fá boltann"

Emiliano Martinez og Cristiano Ronaldo

Emiliano Martinez og Cristiano Ronaldo

Canon

Mynd: EPA

Emiliano Martinez, markvörður Aston Villa, virtist ná til Bruno Fernandes áður en hann steig á punktinn til að taka vítaspyrnu í uppbótartíma.
Villa var yfir gegn United áður en Hause handlék knöttinn innan teigs í uppbótartíma.

Fernandes fór á punktinn. Cristiano Ronaldo bað Fernandes um að fá að taka vítið en Fernandes neitaði.

Martinez, sem er þekktur fyrir að notast við alls konar brögð til að stuða menn, fór að Fernandes og sagði honum að láta Ronaldo fá boltann.

Fernandes tók vítið á endanum og þrumaði boltanum vel yfir markið en þetta kænskubragð Martinez virkaði og skilaði sigri.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.