25.09.26 - 19:07
Andri Stefánsson
Daníel um aukaspyrnumarkið: Ég vissi auðvitað að þetta myndi gerast
Auglýsing

Daníel að fagna aukaspyrnumarkinu.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Daníel að fagna aukaspyrnumarkinu.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

„Ég er frekar sáttur. Auðvitað hefðum við viljað vinna leikinn en það er alltaf gott að fá stig á móti Frökkum,"

TENGT EFNI
Sjáðu stórkostlegt aukaspyrnumark Daníels Tristans gegn Frökkum
Hvernig gerirðu leikinn upp?
„Þeir voru aðeins betri í fyrri hálfleik en við förum inn í hálfleik og erum enn þá inni í leiknum, bara 1-0 undir. Við ræddum þetta aðeins á milli okkar í hálfleik og vissum að við værum enn inni í leiknum. Síðan náðum við markinu sem við vildum.“
Þið komuð af miklum krafti inn í seinni hálfleikinn. Hvað breyttist í hálfleik?
„Við fórum bara inn í hálfleik og ræddum þetta saman. Við spiluðum rosalega vel sem lið og stóðum okkur ótrúlega vel saman. Við vissum að það væri enn þá mikill tími eftir.“
Hvað fór í gegnum hausinn á þér þegar þú sást aukaspyrnuna syngja í vinstra horninu?
„Ég vissi auðvitað að þetta myndi gerast. Ég var mjög confident fyrir þessari spyrnu og sá þetta fyrir mér þegar ég fór í spyrnuna. Svo var bara geggjað að sjá boltann fara inn og fagna því.“
Hvernig finnst þér að spila með Viktori Bjarka?
„Það er bara geggjað. Hann er flottur leikmaður og mjög gaman að fá að spila með honum. Við spilum mjög vel saman.“
Hvernig leggst leikurinn gegn Sviss í þig?
„Við erum ógeðslega spenntir. Við erum bara með fullan fókus á hann núna og tökum það sem við getum bætt úr þessum leik með okkur inn í næsta leik.“
Viðtalið í heild sinni má finna í spilaranum hér fyrir ofan

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Frakkland | 7 | +17 | 17 |
| 2 | Sviss | 7 | +5 | 14 |
| 3 | Ísland | 8 | +5 | 12 |
| 4 | Færeyjar | 7 | -7 | 9 |
| 5 | Lúxemborg | 6 | -7 | 4 |
| 6 | Eistland | 7 | -13 | 2 |