25.09.26 - 22:00
Ívan Guðjón Baldursson
EM U21: Acheampong og Bellingham mikilvægir - Finnar unnu Spánverja

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Það var mikið um að vera í undankeppni fyrir EM U21 árs landsliða í dag og í kvöld þar sem tíu leikir fóru fram og komu nokkrar afar sterkar þjóðir við sögu.

TENGT EFNI
U21: Mjög gott stig gegn Frökkum
Eins og greint hefur verið frá gerði Ísland mjög gott jafntefli við stjörnum prýtt lið Frakka í Laugardalnum en enska U21 liðið kom einnig við sögu.
England tók á móti Kasakstan og var staðan jöfn 2-2 eftir fjörugan fyrri hálfleik. Heimamenn tóku völdin í síðari hálfleik og skoruðu tvö mörk til að standa uppi sem sigurvegarar að lokum, 4-2 lokatölur.
Josh Acheampong skoraði og lagði upp í sigrinum á meðan Jobe Bellingham átti tvær stoðsendingar. Þá komst Max Alleyne einnig á blað ásamt Will Lankshear sem kom inn af bekknum. Archie Gray, Ethan Nwaneri, Rico Lewis og Joshua King voru meðal byrjunarliðsmanna. Everton mennirnir Tyler Dibling og Tyrique George komu inn af bekknum á meðan Lewis Miley, leikmaður Newcastle, var ónotaður varamaður.
England er svo gott sem búið að tryggja sér þátttökurétt á EM með þessum sigri. Lærlingar Lee Carsley þurfa að tapa 4-0 eða stærra á heimavelli gegn Slóvakíu í næsta leik til að eiga einhvern möguleika á því að missa af sæti á lokamótinu.
Finnland komst þá í tveggja marka forystu og vann að lokum afar óvæntan 2-1 sigur gegn ógnarsterku liði Spánverja sem sótti og sótti en tókst ekki að minnka muninn fyrr en á lokamínútunum. Miðvörðurinn Jacobo Ramón skoraði á 86. mínútu eftir stoðsendingu frá Álex Valle, en þeir leika saman í sterkri varnarlínu Cesc Fábregas hjá Como í efstu deild á Ítalíu.
Gonzalo García leikmaður Fulham leiddi sóknarlínu Spánverja í tapinu og kom Carlos Espí, framherji Real Madrid, inn af bekknum á 74. mínútu.
Spánverjar áttu fullt hús stiga fyrir tapleikinn og tróna áfram á toppi riðilsins, með 21 stig eftir 8 umferðir. Finnar fylgja fast á eftir með 19 stig þegar tvær umferðir eru eftir af undankeppninni.
Portúgal tapaði þá óvænt í Búlgaríu eftir að hafa náð forystunni snemma í síðari hálfleik. Serie A leikmennirnir Rodrigo Mora og Gustavo Varela tengdu vel saman til að komast yfir, en Nikola Iliev svaraði með tveimur stoðsendingum fyrir heimamenn á lokamínútunum. Magnaður endurkomusigur hjá Búlgörum sem eiga möguleika á sæti á EM, á meðan Portúgalir tróna áfram á toppi riðilsins. Portúgölum nægir sigur gegn Gíbraltar í næstu umferð til að tryggja sér þátttöku á lokamótinu.
Norðmenn gerðu að lokum jafntefli við Hollendinga í skrýtnum G-riðli. Þar eru Norðmenn öruggir á toppnum með 13 stig eftir 6 umferðir, en öll önnur lið riðilsins eiga á billinu 5 til 7 stig.
Aserbaídsjan 1 - 1 Tékkland
Ísland 1 - 1 Frakkland
Búlgaría 2 - 1 Portúgal
Finnland 2 - 1 Spánn
Kýpur 0 - 3 Rúmenía
Eistland 1 - 2 Færeyjar
Slóvakía 0 - 2 Írland
Holland 0 - 0 Noregur
Sviss 5 - 0 Lúxemborg
England 4 - 2 Kasakstan