Fotbolti.net
25.09.26 - 16:54
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

U21: Mjög gott stig gegn Frökkum

Daníel Tristan skoraði glæsilegt mark

Daníel Tristan skoraði glæsilegt mark

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Ísland U21 1 - 1 Frakkland U21
0-1 Mathys Tel ('31 )
1-1 Daníel Tristan Guðjohnsen ('52 )
Lestu um leikinn

Ísland mætti Frakklandi í undankeppni EM í flokki U21 liða í dag. Leikurinn var þriðji síðasti leikur Íslands í liðinu en sá fjórði síðasti hjá Frökkum. Fyrir leikinn hafði Frakkland unnið fimm leiki og gert eitt jafntefli en Ísland var með ellefu stig eftir sjö leiki; með þremur stigum minna en Sviss í 2. sæti riðilsins.
Sjáðu stórkostlegt aukaspyrnumark Daníels Tristans gegn Frökkum
TENGT EFNI

Sjáðu stórkostlegt aukaspyrnumark Daníels Tristans gegn Frökkum

Það var Mathys Tel, leikmaður Tottenham, sem kom Frökkum yfir eftir rúmlega hálftíma leik. Íslenska liðið bjargaði glæsilega á línu en boltinn skoppaði á Tel sem setti boltann í autt markið.

0-1 var staðan í hálfleik en eftir sex mínútur af seinni hálfleik fékk Íslands aukaspyrnu á hættulegum stað við vítateig Frakka. Þeir Daníel Freyr Kristjánsson og Daníel Tristan Guðjohnsen stóðu yfir boltanum og það var Daníel Tristan sem lét vaða og boltinn söng í vinstra markhorninu - glæsilega gert hjá Daníel.

Ísland fékk svo gott færi á 68. mínútu en Stígur Diljan Þórðarson náði ekki að nýta færið eftir undirbúning frá Galdri Guðmundssyni.

Niðurstaðan mjög dýrmætt stig í baráttunni í efri hluta riðilsins. Framundan hjá Íslandi er leikur gegn Sviss á þriðjudag sem spilar fyrst við Lúxemborg í kvöld. Sviss á svo eftir að mæta Frökkum og Ísland á leik eftir gegn Færeyjum.

Efsta lið riðilsins fer beint á EM og möguleiki er á EM sæti með því að enda í öðru sæti.

föstudagur 25. september
17:30 Sviss - Lúxemborg

þriðjudagur 29. september
15:00 Ísland-Sviss (PEPSI völlurinn)

þriðjudagur 6. október
17:00 Frakkland-Sviss
17:00 Færeyjar-Ísland (Tórsvöllur)

Stöðutaflan hefur ekki verið uppfærð
Byrjunarlið Íslands

Byrjunarlið Íslands

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

U21: Mjög gott stig gegn Frökkum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Frakkland6+1716
2Sviss7+514
3Ísland7+511
4Færeyjar7-79
5Lúxemborg6-74
6Eistland7-132
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.