25.09.26 - 15:06
Elvar Geir Magnússon
„Er fyrst og fremst í hópnum því hann er enn mjög góður leikmaður“

Aron Einar Gunnarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Aron Einar Gunnarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Einar Gunnarsson gaf það út í vikunni að Þjóðadeildin verði hans síðasta keppni með íslenska landsliðinu.
Framundan í landsleikjaglugganum eru fjórir leikir í Þjóðadeild C og riðlakeppninni lýkur í nóvember. Ef Ísland fer í umspil verður það svo spilað á næsta ári og þá verður einnig undankeppnin fyrir EM spiluð.
Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari var spurður að því á fréttamannafundi í dag hvað hann vildi fá frá Aroni í þessum glugga?

TENGT EFNI
Aron Einar: Þetta verður mín síðasta keppni með landsliðinu
„Hann er að koma inn með mikla reynslu og þekkingu. Hann er einn af þeim leikmönnum sem eru með stórmótareynslu. Þetta verður erfiður gluggi. Hann hefur verið leiðtogi hópsins í mörg ár. Hann þarf ekki fyrirliðabandið til að vera hluti af leiðtogahópnum," segir Arnar.
„Hversu mikið sem hann mun spila í glugganum þá ætlast ég til þess að hann verði áfram eins faglegur eins og hann er og gefa af sér innan vallar sem utan. Hann er fyrst og fremst í hópnum því hann er enn mjög góður leikmaður. Hann og Gylfi munu báðir leggja sitt af mörkum."
Í ljósi þeirra eiginleika sem Aron býr yfir, er mögulegt að hann verði áfram tengdur teyminu í kringum landsliðið þegar skórnir eru komnir á hilluna?
„Við höfum ekkert rætt það en miðað við hversu áhugasamur hann er að fylgjast með því hvað er að gerast bak við tjöldin hjá þjálfarateyminu og þess háttar þá kæmi mér verulega á óvart ef framtíð hans er ekki í fótbolta þegar skórnir fara á endanum á hilluna," segir Arnar Gunnlaugsson.