25.09.26 - 19:23
Elvar Geir Magnússon
Í skýrslutöku hjá lögreglunni eftir að hafa reynt að fá treyju Mbappe

Drengirnir í skýrslutöku hjá lögreglunni.

Mynd: Fótbolti.net

Tveir drengir enduðu í skýrslutöku hjá lögreglunni eftir 1-1 jafnteflisleik U21 landsliða Íslands og Frakklands í Laugardalnum í dag.
Öryggisverðir á leiknum gripu drengina eftir að þeir höfðu hlupið inn á völlinn og fóru með þá til lögregluþjóna sem voru á staðnum, Drengjunum var svo sleppt að lokinni skýrslutöku.
Eftirlitsmenn UEFA fylgdust vel með atburðarásinni og ekki ólíklegt að KSÍ eigi von á sekt eftir málið.
Samkvæmt upplýsingum Fótbolta.net fóru þeir inná til að freista þess að fá treyju Ethan Mbappe, litla bróður Kylian Mbappe.
Ethan spilar með Lille og kom inn af bekknum á 66. mínútu í leiknum.

TENGT EFNI
Sjáðu stórkostlegt aukaspyrnumark Daníels Tristans gegn Frökkum
Mathys Tel kom Frökkum yfir í leiknum í dag en Daníel Tristan Guðjohnsen jafnaði beint úr aukaspyrnu og jafntefli urðu lokatölurnar.

Ethan Mbappe í leiknum í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson