Fotbolti.net
25.09.26 - 10:30
Elvar Geir Magnússon

Sá hárprúði fékk afsökunarbeiðni frá Amorim

Ilett og Amorim.

Ilett og Amorim.

Canon

Mynd: Instagram: @theunitedstrand

Frank Ilett, stuðningsmaður Manchester United, hlaut heimsfrægð fyrir að safna hári en hann hefur ekki farið í klippingu síðan í október 2024.

Hann tók þá ákvörðun að klippa ekki hár sitt fyrr en United næði fimm sigurleikjum í röð. Hann hefur rakað að sér fylgjendum á samfélagsmiðlum fyrir uppátæki sitt.
Rooney kominn með nóg af þeim hárprúða
TENGT EFNI

Rooney kominn með nóg af þeim hárprúða

Ilett segir frá því á Instagram að hann rakst á Rúben Amorim fyrir tilviljun á fótboltaráðstefnu í Portúgal en portúgalska stjóranum mistókst að tengja saman fimm sigurleiki í þeim 63 leikjum sem hann stýrði United.

„Hann benti á hárið á mér og sagði 'Fyrirgefðu þetta!' - Mér þykir samt enn mjög vænt um hann!" segir Ilett.

Amorim stýrir nú AC Milan sem er í fimmta sæti ítölsku A-deildarinnar.


Sá hárprúði fékk afsökunarbeiðni frá Amorim
Canon

Mynd: Skjáskot

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.