Fotbolti.net
25.09.26 - 23:20
Ívan Guðjón Baldursson

Sjáðu mörkin: Hrikaleg frammistaða Nyland í 3-2 sigri

Sjáðu mörkin: Hrikaleg frammistaða Nyland í 3-2 sigri
Canon

Mynd: EPA

Örjan Nyland varði mark Noregs í 3-2 sigri á heimavelli gegn Danmörku í Þjóðadeildinni í gær og gerðist hann sekur um mistök í báðum mörkum gestanna.
Þjóðadeildin: Haaland setti tvennu gegn Dönum - Gakpo eyðilagði partýið fyrir Klopp
TENGT EFNI

Þjóðadeildin: Haaland setti tvennu gegn Dönum - Gakpo eyðilagði partýið fyrir Klopp

Norðmenn komust í tveggja marka forystu en Mikkel Damsgaard minnkaði svo muninn með marki beint úr aukaspyrnu. Nyland hefði hæglega getað varið skotið en stóð þess í stað steinrunninn í miðju markinu og horfði á boltann skjótast í netið.

Jöfnunarmark Dana kom í síðari hálfleik þegar Nyland mistókst að stöðva lausan skalla. Hann varði boltann út í vítateiginn þar sem Rasmus Höjlund var mættur til að skalla hann inn.

Sem betur fer fyrir Nyland og Norðmenn bjargaði Erling Haaland sínum mönnum með sigurmarki.

Sjáðu mörkin.
Sjáðu mörkin: Hrikaleg frammistaða Nyland í 3-2 sigri
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.