Fotbolti.net
25.09.26 - 07:30
Ívan Guðjón Baldursson

Þýskalandsmeistararnir skoða Dani Olmo

Þýskalandsmeistararnir skoða Dani Olmo
Canon

Mynd: EPA

Þýskalandsmeistarar FC Bayern eru að skoða spænska sóknartengiliðinn Dani Olmo sem mögulegan arftaka fyrir Jamal Musiala.
Olmo hafnar afsökunarbeiðninni og segir þjálfarann ljúga
TENGT EFNI

Olmo hafnar afsökunarbeiðninni og segir þjálfarann ljúga

Bayern óttast að missa annað hvort Musiala eða Michael Olise í næstu félagaskiptagluggum vegna vaxandi áhuga stórvelda utan Þýskalands á sóknarleikmönnunum.

Musiala er ennþá með fjögur ár eftir af samningi á meðan Olise á þrjú ár.

Bayern hefur verið áhugasamt um Olmo síðan hann var leikmaður RB Leipzig í þýsku deildinni. Spánarmeistarar Barcelona eru taldir vera reiðubúnir til að selja Olmo fyrir um 70 milljónir evra, samkvæmt Sky Sports:

Olmo er 28 ára og hefur komið með beinum hætti að 40 mörkum í 96 leikjum með Barcelona. Þá var hann mikilvægur hlekkur í spænska landsliðinu sem varð heimsmeistari í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.