Fotbolti.net
25.09.26 - 22:30
Ívan Guðjón Baldursson

Tuchel: Palmer hefur misst af alltof mörgum tækifærum

Tuchel: Palmer hefur misst af alltof mörgum tækifærum
Canon

Mynd: EPA

Það kom einhverjum á óvart þegar Cole Palmer var ekki í enska landsliðshópnum sem fór á heimsmeistaramótið í sumar.
Palmer dregur sig úr enska hópnum
TENGT EFNI

Palmer dregur sig úr enska hópnum

Palmer er afar hæfileikaríkur sóknartengiliður en hefur aðeins spilað 14 A-landsleiki sökum tíðra meiðslavandræða.

Hann var kallaður upp í landsliðshóp Englands fyrir Þjóðadeildargluggann en er einn af leikmönnunum sem drógu sig úr hópnum vegna meiðsla. Thomas Tuchel landsliðsþjálfari segir að Palmer sé að missa af alltof mörgum tækifærum til að sanna sig með landsliðinu.

„Cole Palmer missir af alltof mikið af tækifærum til að sanna sig með landsliðinu vegna meiðsla. Það er ekki við hann að sakast," sagði Tuchel fyrir stórleik Englands gegn Spáni sem verður leikinn annað kvöld.

„Ég get bara dæmt menn útfrá því sem þeir gera í mínu liði og til þess þurfa leikmenn að taka þátt í landsliðsverkefnum. Ef menn eru ekki með í landsliðsverkefnum þá get ég ekki metið mikilvægi þeirra fyrir landsliðið. Góð frammistaða með félagsliði kemur mönnum bara ákveðið langt, þeir verða líka að sanna sig með landsliðinu. Ég get bara tekið ákvarðanir útfrá því sem ég sé mína leikmenn gera á vellinum.

„Cole er að spila í gegnum sársauka og þess vegna dró hann sig úr hópnum. Þú getur ekki verið samkeppnishæfur á hæsta gæðastigi spilandi í gegnum svona mikinn sársauka."
Tuchel: Palmer hefur misst af alltof mörgum tækifærum
Canon

Mynd: EPA

Tuchel: Palmer hefur misst af alltof mörgum tækifærum
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.