Fotbolti.net
25.09.26 - 18:20
Ívan Guðjón Baldursson

Úrvalsdeildarfélög gætu höfðað skaðabótamál á hendur City

Úrvalsdeildarfélög gætu höfðað skaðabótamál á hendur City
Canon

Mynd: EPA

Manchester City er í talsverðum vandræðum eftir tilkynningu frá því fyrr í dag. Þar segir að óháð nefnd hafi fundið félagið sekt í 114 af 115 ákæruliðum vegna misalvarlegra brota á reglum ensku úrvalsdeildarinnar.
Manchester City fundið sekt í nánast öllum ákæruliðum
TENGT EFNI

Manchester City fundið sekt í nánast öllum ákæruliðum

Búist er við afar þungum refsingum gegn Man City sérstaklega miðað við svipuð mál sem hafa komið upp í fortíðinni. Everton og Nottingham Forest fengu dæmd mínusstig fyrir talsvert vægari brot.

City mun áfrýja málinu en ólíklegt er að stórveldinu takist að fá niðurstöðunni breytt. Tapi City áfrýjuninni opnar það á ýmsa möguleika fyrir keppinauta félagsins í úrvalsdeildinni, sérstaklega eftir mál Burnley gegn Everton sem dæmt var í fyrr í sumar.

Everton var þar gert að greiða Burnley skaðabætur upp á 35 milljónir punda (26 milljónir + 9 milljónir í vexti) eftir að hafa brotið fjármálareglur úrvalsdeildarinnar tímabilið 2021-22 og tekist að forðast fall úr deildinni á kostnað Burnley sem féll.

Samkeppnisaðilar Man City munu þar af leiðandi geta höfðað svipuð mál gegn risaveldinu, sem gæti endað á að þurfa að greiða himinháar skaðabætur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.