25.09.26 - 18:56
Andri Stefánsson
„Við þurfum svona gæja til þess að vinna leiki“
Auglýsing

Eggert Aron.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eggert Aron.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

„Mér líður bara mjög vel. Við spiluðum mjög vel á móti góðu liði og gerðum margt gott“, sagði Eggert Aron Guðmundsson, fyrirliði Íslands, eftir 1-1 jafntefli gegn Frökkum.
Lestu um leikinn: Ísland U21 1 - 1 Frakkland U21
Hvernig gerirðu leikinn upp?
„Þeir taka aðeins stjórnina í fyrri hálfleiknum en mér fannst þeir ekki skapa sér sérstaklega mikið. Síðan fá þeir markið, bara pínu klaufalegt og kannski smá óheppni líka. Við komumst síðan betur inn í leikinn og í seinni hálfleik fannst mér við stíga aðeins upp, skoruðum mark og mér fannst leikurinn í heild sinni frekar jafn.“
Þið komuð af miklum krafti inn í seinni hálfleikinn. Hvað geturðu sagt um mark Daníels?
„Daníel er bara svona gæi. Við þurfum svona gæja til þess að vinna leiki. Ég er mjög sáttur með Daníel í dag, hann stóð sig mjög vel og gerði fullt fyrir liðið bæði sóknarlega og varnarlega.“
Ertu sáttur með úrslitin?
„Við viljum auðvitað vinna leikinn en við getum verið sáttir með 1-1. Það er úrslitaleikur á þriðjudaginn og síðan kannski annar úrslitaleikur í næstu viku, þannig að það er bara gaman.“
Hvernig er að vera fyrirliði?
„Það er bara gaman. Við erum með fullt af góðum leikmönnum.“
Hvernig leggst leikurinn gegn Sviss í þig?
„Bara vel. Við erum með gott lið og þeir líka.“
Viðtalið í heild sinni má finna í spilaranum hér fyrir ofan