Fotbolti.net
25.09.26 - 18:40
Andri Stefánsson

Viktor Bjarki: Mér fannst við eiga meira skilið

Auglýsing
Viktor Bjarki og Daníel Tristan.

Viktor Bjarki og Daníel Tristan.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
„Mér líður bara mjög vel. Mér finnst við spila mjög vel og við gáfum þeim hörkuleik. Bara mjög sáttur við frammistöðuna,“ sagði Viktor Bjarki Daðason eftir 1-1 jafntefli gegn Frakklandi í dag.
Lestu um leikinn: Ísland U21 1 - 1 Frakkland U21
Hvernig gerirðu leikinn upp?

„Mér fannst við í fyrri hálfleik aðeins of passívir en samt spiluðum við vel, sköpuðum nokkur færi og héldum bara áfram. Mér fannst margir alveg svolítið soft en svo fannst mér seinni hálfleikurinn bara betri, einfaldlega.“

Fannst þér þið eiga meira skilið úr leiknum?

„Já, mér fannst við koma út í seinni hálfleikinn með kraft. Við fáum mark úr frábærri aukaspyrnu hjá Danna og þá fannst mér orkustigið bara hækka. Mér fannst við pressa meira og mér fannst ég sjálfur kannski geta skorað úr einu færinu sem ég fékk. Mér fannst við eiga meira skilið, persónulega.“

Hvernig finnst þér að spila tveir saman frammi, þú og Daníel?

„Bara geggjað. Mér finnst við ná mjög vel saman. Við kunnum líka vel hvor á annan núna eftir að hafa spilað tvo leiki saman, svo það er bara geggjað.“

Næsti leikur er gegn Sviss. Hvernig leggst hann í þig?

„Það leggst bara mjög vel í mig. Mikilvægur leikur til að komast áfram á þetta stórmót. Ég held að við ætlum bara að gefa allt í leikinn og vonandi vinna.“

Viðtalið í heild sinni má finna í spilaranum hér fyrir ofan

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Frakkland7+1717
2Sviss7+514
3Ísland8+512
4Færeyjar7-79
5Lúxemborg6-74
6Eistland7-132
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.