Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   mán 25. október 2021 22:17
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Saliba hæstánægður eftir leik - Átti stórkostlega tæklingu
William Saliba.
William Saliba.
Mynd: Getty Images
Varnarmaðurinn William Saliba var hæstánægður með sína frammistöðu með Marseille gegn Paris Saint-Germain í frönsku úrvalsdeildinni í gær.

Leikurinn endaði með markalausu jafntefli og var Saliba ánægður að leik loknum. Hann þurfti að takast á við stjörnur PSG í leiknum, Neymar, Kylian Mbappe og Lionel Messi.

„Þetta var besti leikurinn á mínum ferli," sagði Saliba eftir leikinn.

Saliba átti magnaða tæklingu í leiknum. Hann elti eldsnöggan Mbappe uppi og átti tæklingu í heimsklassa. Hann fagnaði henni vel og það skiljanlega.

Þessi efnilegi varnarmaður er á láni hjá Marseille frá Arsenal. Það hefur vakið athygli að Mikel Arteta geti ekki notað hann.

Hægt er að sjá myndband af tæklingunni hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner