Fotbolti.net
25.10.26 - 10:00
Ívan Guðjón Baldursson

Courtois um einræðisherrann: Mbappé hefur gaman af þessu

Courtois um einræðisherrann: Mbappé hefur gaman af þessu
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Thibaut Courtois, markvörður Real Madrid, tjáði sig á fréttamannafundi fyrir El Clásico slaginn eftirvænta sem fer fram í kvöld.
Courtois svaraði meðal annars spurningum um Kylian Mbappé, sem hefur verið titlaður einræðisherrann á samfélagsmiðlum, og Vinícius Júnior, sem hefur átt erfitt uppdráttar á upphafi tímabils.

„Við hlægjum mikið að þessu í klefanum og syngjum lagið," svaraði Courtois þegar hann var spurður út í 'einræðisherrann'. „Ég held að honum finnist þetta vera fyndið eins og okkur hinum.

„Hvað varðar Vini þá er hann að vinna hörðum höndum að því að finna sitt besta form aftur. Það mun koma með tímanum, hann þarf stuðning frá liðsfélögunum og stuðningsmönnum."


Courtois er 34 ára gamall og rennur samningur hans við Real Madrid út næsta sumar.

„Ég er nálægt því að skrifa undir nýjan samning, ég vil spila fyrir Real Madrid þar til ég legg hanskana á hilluna.

„Núna er ég einbeittur að El Clásico slagnum. Fólk segir að Barcelona sé sigurstranglegra en þegar allt kemur til alls þá eru þessir leikir alltaf 50/50. Okkur líður vel og við höfum fulla trú á getu okkar til að sigra viðureignina."


Real Madrid situr í þriðja sæti spænsku deildarinnar með 21 stig eftir 9 umferðir, sex stigum á eftir Spánarmeisturum Barcelona sem eru með fullt hús stiga.
Courtois um einræðisherrann: Mbappé hefur gaman af þessu
Canon

Mynd: EPA

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona9+3027
2Atletico Madrid10+1225
3Real Madrid9+1421
4Betis9+219
5Real Sociedad9016
6Sevilla9-214
7Alaves10+312
8Villarreal10+112
9Celta9+311
10Deportivo10011
11Osasuna9-811
12Racing Santander10-1111
13Levante9-210
14Elche10-310
15Athletic8-19
16Getafe9-69
17Vallecano9-89
18Espanyol10-28
19Valencia10-106
20Malaga10-125
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.