Fotbolti.net
25.10.26 - 10:36
Brynjar Ingi Erluson

Courtois með flensu og missir af El Clásico

Courtois með flensu og missir af El Clásico
Canon

Mynd: EPA

Belgíski markvörðurinn Thibaut Courtois missir af stórleik Real Madrid gegn Barcelona í El Clásico í dag vegna flensu.
Spænska félagið staðfesti tíðindin í tilkynningu á heimasíðu sinni í dag.

Madrídingar verða því án Courtois í leiknum, auk Vini Jr sem tekur út leikbann.

Real Madrid hefur jafnframt greint frá því að hinn 19 ára gamli Illia Voloshyn taki sæti Courtois í leikmannahópnum.

Voloshyn er frá Úkraínu en flutti til Spánar árið 2022 eftir innrás Rússa í heimaland hans.

Það merkilega er að tveir úkraínskir markverðir verða því í leikmannahópi Real Madrid í kvöld, en Andriy Lunin mun standa á milli stanganna í fjarveru Courtois.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.