Fotbolti.net
25.10.26 - 10:20
Brynjar Ingi Erluson

Myndband: Neymar lét veiða sig í gildru og var rekinn af velli

Myndband: Neymar lét veiða sig í gildru og var rekinn af velli
Canon

Mynd: EPA

Brasilíski framherjinn Neymar lét veiða sig í gildru og fékk að líta rauða spjaldið í leik Santos gegn Bahia í nótt.
Neymar fékk að líta rauða spjaldið í hálfleik eftir orðaskipti við Rodrigo Nestor, leikmann Bahia.

Leikmennirnir höfðu átt í rökræðum og virtist málið vera úr sögunni, en Neymar gekk þá aftur að Nestor og sagði eitthvað við hann um leið og hann hélt fyrir munninn. Nestor brást strax við og kvartaði undan ummælunum við dómarann.

Dómarinn fór yfir atvikið áður en hann dró upp rauða spjaldið og rak Neymar af velli.

Það verður að teljast ansi klaufalegt hjá Neymar að láta veiða sig í þessa gildru, en brottvísunin þýðir að hann missir af næsta leik Santos, sem verður gegn stórliði Palmeiras.

Santos er í áttunda sæti deildarinnar með 46 stig en Palmeiras trónir á toppnum með 69 stig.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.