Delap, Mainoo, Bastoni, Atubolu, Vicario, Dewsbury-Hall, Guimaraes og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 26. janúar 2020 14:37
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hólmar Örn á leiðinni til Bournemouth?
Hólmar Örn Eyjólfsson.
Hólmar Örn Eyjólfsson.
Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir
Bournemouth er að íhuga tilboð í Hólmar Örn Eyjólfsson, miðvörð Levski Sofia í Búlgaríu. Frá þessu er sagt á 90min.com.

Bournemouth er í veseni í ensku úrvalsdeildinni. Varnarleikurinn hefur ekki verið upp á marga fiska og er knattspyrnustjórinn Eddie Howe í leit að liðsstyrk.

Hólmar er sagður hafa vakið áhuga enska úrvalsdeildarfélagsins. Samkvæmt heimildarmanni 90min þá er Bournemouth tilbúið að ná í hann áður en félagaskiptaglugginn lokar síðar í þessari viku.

Þá gengur 90min svo langt að segja að Bournemouth sé ekki eina enska félagið sem hafi áhuga á hinum 29 ára gamla Hólmari.

Það vinnur með honum að hann var á mála hjá West Ham á Englandi frá 2008 til 2011, án þess þó að spila leik með aðalliðinu. Hann spilaði þó fjóra aðalliðsleiki á láni hjá Cheltenham Town 2009/10 tímabilið, þannig að hann kannast eitthvað við sig í enskum fótbolta.

Hólmar hefur gert mjög vel í að koma til baka úr erfiðum meiðslum. Hann hefur á þessu tímabili spilað 15 deildarleiki í Búlgaríu og skorað þrjú mörk.

Hólmar á 14 A-landsleiki fyrir Íslands og tvö landsliðsmörk.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 31 21 7 3 61 22 +39 70
2 Man City 30 18 7 5 60 28 +32 61
3 Man Utd 31 15 10 6 56 43 +13 55
4 Aston Villa 30 15 6 9 40 37 +3 51
5 Liverpool 30 14 7 9 49 40 +9 49
6 Chelsea 30 13 9 8 53 35 +18 48
7 Brentford 30 13 6 11 46 42 +4 45
8 Everton 30 12 7 11 34 35 -1 43
9 Newcastle 30 12 6 12 43 43 0 42
10 Bournemouth 31 9 15 7 46 48 -2 42
11 Fulham 30 12 5 13 40 43 -3 41
12 Brighton 30 10 10 10 39 36 +3 40
13 Sunderland 30 10 10 10 30 35 -5 40
14 Crystal Palace 30 10 9 11 33 35 -2 39
15 Leeds 30 7 11 12 37 48 -11 32
16 Tottenham 30 7 9 14 40 47 -7 30
17 Nott. Forest 30 7 8 15 28 43 -15 29
18 West Ham 30 7 8 15 36 55 -19 29
19 Burnley 30 4 8 18 32 58 -26 20
20 Wolves 31 3 8 20 24 54 -30 17
Athugasemdir
banner
banner