Fimm leikir fara fram í íslenska boltanum í dag en fjórir þeirra eru í Reykjavíkurmóti karla.
Í A-riðlinum er Valur, Víkingur R. og Leiknir R. öll með sex stig en Víkingur hefur spilað þrjá á meðan hin toppliðin hafa aðeins spilað tvo.
Víkingur R. mætir því Leikni R. í hörkuleik á Víkingsvellinum á meðan ÍR mætir Val. Í B-riðlinum eigast Fylkir og KR við í Árbænum en bæði lið eru með einn sigur eftir fyrstu umferðina. Fram spilar við Fjölni í síðari leiknum sem fer fram í Egilshöll.
KA og KF eigast þá við í Kjarnafæðismótinu í Boganum og hefst sá leikur klukkan 19:20.
Leikir dagsins:
Reykjavíkurmót karla - A-riðill
19:00 Víkingur R.-Leiknir R. (Víkingsvöllur)
20:00 ÍR-Valur (Hertz völlurinn)
Reykjavíkurmót karla - B-riðill
19:00 Fylkir-KR (Würth völlurinn)
20:00 Fram-Fjölnir (Egilshöll)
Kjarnafæðismótið - A-deild, riðill 1
19:20 KA-KF (Boginn)
Athugasemdir