Inter og AC Milan eigast við í 8-liða úrslitum ítalska bikarsins í kvöld en leikurinn hefst klukkan 19:45.
Það er alltaf blóðug barátta er þessi tvö lið mætast í slagnum um Mílanó.
Bæði lið hafa verið að gera vel í deildinni en Milan er í efsta sæti á meðan Inter er í öðru sæti.
Nú eigast liðin við í bikarnum og því allt undir í þessum eina leik.
Leikur dagsins:
19:45 Inter - Milan
Athugasemdir