Valur 2 - 0 Fylkir
1-0 Andri Adolphsson ('12 )
2-0 Tryggvi Hrafn Haraldsson ('39 )
1-0 Andri Adolphsson ('12 )
2-0 Tryggvi Hrafn Haraldsson ('39 )
Valur leikur til úrslita í Reykjavíkurmóti karla eftir að hafa unnið Fylki 2-0 á Origo-vellinum í kvöld.
Skagamennirnir Andri Adolphsson og Tryggvi Hrafn Haraldsson sáu um að skora mörk Valsmanna.
Andri skoraði á 12. mínútu leiksins áður en Tryggvi tvöfaldaði forystuna á 39. mínútu.
Lokatölur 2-0 og Valur í úrslit. Valur hafnaði í efsta sæti með 7 stig, jafnmörg og Víkingur R. en með betri markatölu. Það liggur ekki fyrir hvaða liði Valur mætir í úrslitum.
Athugasemdir