Fotbolti.net
26.03.20 - 12:30
Magnús Már Einarsson

Shanghai Shenhua býður Ighalo risasamning

Shanghai Shenhua býður Ighalo risasamning
Canon

Mynd: Getty Images

Kínverska félagið Shanghai Shenhua hefur boðið framherjanum Odion Ighalo tveggja ára framlengingu á samningi sínum en nýr samningur myndi færa honum meira en 400 þúsund pund í laun á viku.

Ighalo gekk til liðs við Manchester United á láni í janúar en þar hefur hann skorað fjögur mörk.

Lánssamningurinn gildir til 31. maí en líklegt er að hann verði framlengdur til að minnsta kosti 30. júní vegna kórónuveirunnar.
Hinn þrítugi Ighalo er samningsbundinn Shanghai þar til í desember 2022 en nýr samningur myndi gilda þar til í desember 2024.

Ighalo hefur verið stuðningsmaður Manchester United síðan í æsku og hann vill sjá hvort félagið reyni að kaupa sig í sumar áður en hann svarar samningstilboði Shanghai Shenhua.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.