Fotbolti.net
26.04.23 - 23:19
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Katla fór á kostum: Eins og við værum að spila leik í janúar

Auglýsing
Katla Tryggvadóttir.

Katla Tryggvadóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Katla Tryggvadóttir skoraði tvennu og lagði upp eitt þegar Þróttur vann 4-1 sigur á FH í fyrstu umferð Bestu deildarinnar.
„Mér líður vel. Við náðum í þrjú stig eins og við ætluðum að gera. Við skoruðum líka fjögur mörk," sagði Katla í samtali við Fótbolta.net eftir leikinn.

Það er ekki auðvelt að mæta FH, en þær eru með gott lið og gáfu Þrótti hörkuleik í kvöld. „Þær mættu okkur hátt á vellinum og pressuðu vel. Þær voru mjög flottar og eiga heima í þessari deild," sagði Katla.

Katla, sem er aðeins 17 ára gömul, skoraði tvö mörk af vítapunktinum og átti stórkostlega stoðsendingu í leiknum. Það hafa margir talað um hana fyrir mót sem einn mest spennandi leikmenn deildarinnar.

„Mér finnst þetta engin pressa. Ég finn allavega ekki fyrir því," sagði þessi efnilegi leikmaður þegar hún var spurð út í umræðuna.

Um vítaspyrnurnar sínar sagði hún: „Mér fannst ég alltaf vera að fara að skora. Ég held að víti snúist mikið um sjálfstraust. Það geta allir sparkað boltanum í markið. Ég er sátt að hafa sett boltann í markið."

Vegna tæknilegra örðugleika þá stoppar myndbandið af viðtalinu fyrr en það á að gera í spilaranum hér að ofan. Það vantar um mínútu af því en á þeim kafla sem vantar talaði Katla um að vera með gott sjálfstraust í augnablikinu. Hún hefur verið að glíma við veikindi undanfarna viku en lét það ekki stoppa sig í kvöld.

Hún er ánægð með byrjunina á tímabilinu og vonar að liðið geti byggt ofan á þessi úrslit. Það var mikil snjókoma á meðan leikurinn var í gangi og um það sagði Katla: „Það var eins og við værum að spila leik í janúar."

Katla var gestur í Heimavellinum á dögunum en hægt er að hlusta á það viðtal í heild sinni hér fyrir neðan.

Heimavöllurinn: U19 á EM - Metnaður, liðsheild og óbilandi trú

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.