Joshua Kimmich var hetja Bayern München í 1-0 sigrinum á Borussia Dortmund í stórslag þýska boltans í dag.
Kimmich skoraði 27. mark sitt á ferlinum í dag og var það af dýrari gerðinni.
Hann fékk boltann fyrir utan teiginn og vippaði honum yfir Roman Bürki í markinu.
Leikmenn Bayern fengu skilaboð frá þjálfarateyminu að Bürki ætti það til að stíga af línunni, sem hann jú gerði.
„Þetta var fallegasta mark mitt á ferlinum og afar mikilvægt. Okkur var sagt fyrir leikinn að Bürki ætti það til að fara af línunni," sagði Kimmich.
Sjá einnig:
Sjáðu markið: Glæsileg vippa frá Kimmich
Athugasemdir