Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 26. maí 2021 18:25
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Æfingahópur U21 - Tveir úr erlendum félagsliðum
Icelandair
Sævar Atli Magnússon hefur spilað mjög vel með Leikni í upphafi Íslandsmótsins.
Sævar Atli Magnússon hefur spilað mjög vel með Leikni í upphafi Íslandsmótsins.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Davíð Snorri Jónasson, landsliðsþjálfari U21 landsliðs karla, hefur valið hóp sem æfir dagana 1.-3. júní.

U21 karla hefur undankeppni EM 2023 í september þegar liðið mætir Hvíta Rússlandi ytra 2. september og Grikklandi 7. september hér heima. Önnur lið í riðlinum eru Portúgal, Kýpur og Liechtenstein.

Landsliðsæfingar munu fara fram á Víkingsvelli.

Athygli vekur að Bjarki Steinn Bjarkason er í æfingahópi U21 landsliðsins en hann gat ekki farið með A-landsliðinu í vináttulandsleiki að sögn Arnars Þórs Viðarssonar.

Það eru aðeins tveir leikmenn í hópnum sem eru á mála hjá erlendum félagsliðum í augnablikinu en það eru Bjarki og Jökull Andrésson, markvörður Reading.

Brynjar Atli Bragason | Breiðablik
Hákon Rafn Valdimarsson | Grótta
Jökull Andrésson | Reading FC
Ágúst Eðvald Hlynsson | FH
Atli Barkarson | Víkingur R.
Birkir Heimisson | Valur
Bjarki Steinn Bjarkason | Venezia
Brynjar Snær Pálsson | ÍA
Daníel Finns Matthíasson | Leiknir R.
Davíð Snær Jóhannsson | Keflavík
Finnur Tómas Pálmason | KR
Gísli Laxdal Unnarsson | ÍA
Ísak Snær Þorvaldsson | ÍA
Jóhann Árni Gunnarsson | Fjölnir
Hjalti Sigurðsson | KR
Karl Friðleifur Gunnarsson | Víkingur R.
Kristall Máni Ingason | Víkingur R.
Nikulás Val Gunnarsson | Fylkir
Orri Hrafn Kjartansson | Fylkir
Sigurjón Rúnarsson | Grindavík
Stefán Árni Geirsson | KR
Sveinn Margeir Hauksson | KA
Sævar Atli Magnússon | Leiknir R.
Sölvi Snær Guðbjargarson | Breiðablik
Teitur Magnússon | FH
Valgeir Valgeirsson | HK
Viktor Örlygur Andrason | Víkingur R.
Vuk Óskar Dimitrjevic | FH
Þórður Gunnar Hafþórsson | Fylkir
Athugasemdir
banner
banner