Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 26. maí 2022 17:56
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mjólkurbikarinn: KA áfram eftir erfiðan fyrri hálfleik
Hallgrímur Mar gerði fjórða mark KA.
Hallgrímur Mar gerði fjórða mark KA.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KA 4 - 1 Reynir S.
1-0 Jakob Snær Árnason ('15 )
1-1 Elton Renato Livramento Barros ('24 )
2-1 Steinþór Freyr Þorsteinsson ('56 )
3-1 Þorri Mar Þórisson ('60 )
4-1 Hallgrímur Mar Steingrímsson ('88 )
Lestu um leikinn

KA er komið áfram í 16-liða úrslit Mjólkurbikars karla. KA-menn mættu Reyni Sandgerði úr 2. deild á Akureyri og lentu í smávegis vandræðum.

Jakob Snær Árnason kom KA yfir eftir stundarfjórðung, en hinn stóri og stæðilegi Elton Renato Livramento Barros jafnaði metin stuttu seinna.

Staðan var óvænt jöfn þegar gengið var til búningsklefa.

Í seinni hálfleik settu heimamenn þó í annan gír og gengu frá leiknum. Steinþór Freyr Þorsteinsson og Þorri Mar Þórisson voru búnir að koma þeim í 3-1 þegar klukkutíma var liðinn af leiknum.

Hallgrímur Mar Steingrímsson, sem hefur verið að stíga upp úr meiðslum, kom inn af bekknum og skoraði svo fjórða mark KA. „Hallgrímur Mar að klára þetta endanlega fyrir KA með stórglæsilegu skoti í fjærhornið - stöngin inn," skrifaði Jóhann Þór Hólmgrímsson í beinni textalýsingu frá leiknum.

KA er komið áfram og verður í pottinum þegar dregið verður í 16-liða úrslitin. Reynismenn geta gengið nokkuð sáttir frá borði eftir flotta baráttu framan af.
Athugasemdir
banner
banner
banner