„Mjög sáttur, við erum búnir að vinna þá þrisvar núna. Þetta var vel útfærður leikur hjá okkur og gott að koma til baka frá síðasta leik,“ sagði Arnór Ingvi Traustason, leikmaður KR, eftir 3-1 sigur á Val.
Eftir aðeins tíu mínútna leik hafði Arnór bæði skorað og lagt upp. Hann segist njóta sín í KR.
Eftir aðeins tíu mínútna leik hafði Arnór bæði skorað og lagt upp. Hann segist njóta sín í KR.
Lestu um leikinn: KR 3 - 1 Valur
„Það er ótrúlega gaman að vera í KR og hvernig við erum að spila. Hópurinn er mjög góður og við náum vel saman.“
„Það er góður andi og allt á uppleið í KR og í Vesturbænum. Maður finnur það, þar sem maður er fluttur hingað. Ótrúlega þægilegt að vera í Vesturbænum og hvað þá í KR.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.






















